Starfandi er sameiginlegt nemendafélag okkar á Hvanneyri og á Reykjum í Hveragerði.
LbhÍ að Reykjum er mennta- og rannsóknastofnun er býður nemendum hagnýtt
nám á sviði garðyrkju, skógræktar og umhverfismála. Meginmarkmið LbhÍ að Reykjum er að styðja við nýsköpun, framþróun og vöxt í þessum atvinnugreinum þannig að þær geti orðið mikilvægar í atvinnulífi dreifbýlis sem og þéttbýlis. Þetta gerir Landbúnaðarháskólinn með öflugu mennta- og rannsóknarstarfi, sem býr einstaklinga undir þátttöku í atvinnulífinu, sjálfstæð vísindastörf eða frekara háskólanám.