Hestamannafélagið Grani var stofnað árið1954 fyrir tilstilli Gunnars Bjarnasonar, þáverandi kennara á Hvanneyri, ognemenda hans við skólann sem höfðu áhuga á hestamennsku. Í febrúar árið 1951hóf Gunnar að kenna tamningar og reiðmennsku við skólann, fyrstur manna áÍslandi. Nemendur sýndu námi í tamningum mikinn áhuga, þó að aðstaða oghúsakynni hafi í fyrstu verið af skornum skammti.
Árið 1957 var Morgunblaðsskeifan veitt ífyrsta skipti. Hún er veitt þeim nemanda semhæstu einkunn hlýtur fyrir tamningar. Morgunblaðsskeifan hefur verið veittárlega og þykir hinn mesti heiður að vera handhafi hennar.
Hestamannafélagið Grani er í dag starfræktaf nemendum Landbúnaðarháskólans, en er einnig opið starfsfólki og staðarbúum á Hvanneyri sem þess óska.
Starfsemi hestamannafélagsins Grana felsttil dæmis í því að skipuleggja Skeifukeppni Grana (sem er stærsti árlegiviðburður á vegum félagsins), halda vetrarmót, halda fyrirlestra og fræðslufundi, standa fyrirýmiskonar ferðum og halda hestamennsku á Hvanneyri í hávegum.
Formaður: Símon Bergur Sigurgerisson
Gjaldkeri: Oddur Ólafsson
Ritari:Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Meðstjórnendur:
Berglind Margo Tryggvason Þorvaldsdóttir
Svala Guðmundsdóttir
Sigurður Snorri Gunnarsson
Einar Ásgeirsson
Hanna Valdís Guðjónsdóttir
Hægt er að senda stjórn Grana póst á netfangið grani@lbhi.is