Nokkrir klúbbar eru starfræktir innan Nemendafélags LbhÍ. Þeir eru misvirkir en standa allir fyrir einhverjum uppákomum yfir skólaárið. Klúbbar halda ársfund sinn oftast að hausti og er þá valið í nýja stjórn sem situr eitt ár. Hægt er að stofna nýja klúbba og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við formann eða stjórn nemendafélagsins ef þeir vilja stofna nýjan klúbb.