Logo
Málgagn nemendafélags nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands
Háskólaþorpið


1. Ásgarður
Þar eru skrifstofur, kennslustofur, mötuneyti, líkamsrækt, móttaka og heimavist. Ásgarður var byggður á árunum 1965 – 1979 en var mikið endurnýjur árið 1996. Húsið er teiknað af Sigurjóni Sveinssyni og Þorvaldi Kristmundssyni. Nafnið Ásgarður er eiginlega sótt til gamals býlis í Hvanneyrarhverfinu er stóð NNV af þessari byggingu, sjá einnig nr. 20.


2. Rannsóknahús
Þar er rannsóknastofa þar sem fara fram ýmsar rannsóknir meðal annars á heysýnum. Þar fer fram verkleg kennsla í efnafræði og fleiri fögum. Bóksala skólans er í forstofu Rannsóknahússins.



3. Hvannir - skrifstofuhús
Í Hvannahúsinu hafa fyrirtæki tengd landbúnaði skrifstofuaðstöðu. Þar eru meðal annars: Búnaðarsamtök Vesturlands, Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Hagþjónusta landbúnaðarins, héraðsfulltrúi landgræðslu ríkisins, Nýhönnun/PJ byggingar, Veiðimálastofnun, Vesturlandsskógar og Svíri ehf.



4. Nemendagarðar - Skólaflöt
Nemendagarðar, fjölbýlishús.



5. Nemendagarðar – Hvanneyrargötu
Árgarður, Hlégarður, Ráðgarður og Sólgarður
Í Árgarði og Hlégarði eru herbergi með sameiginlegri dagstofu og eldunaraðstöðu en í Ráðgarði og Sólgarði eru íbúðir fyrir nemendur á vegum Nemendagarðanna.



6. Nemendagarður – Túngötu
Végarður (Túngata 22)
Húsnæði á vegum Nemendagarða



7. Lækurinn (Tungutúnslækur)
Bæjarlækur er hverju býli nauðsynlegur. Árið 1932 var köldum læknum veitt um tíma í 18 metra sundlaug sem nemendur skólans hlóðu úr torfi. Árið 1943 var hún nokkuð endurbætt og notuð til keppni á Landsmóti UMFÍ á Hvanneyri. Árið 1989 plantaði Vigdís Finnbogadóttir þáverandi forseti þremur birkitrjám við lækinn; þar er nú kallaður Vigdísarlundur.



8. Skemman
Skemman er elsta húsið á Hvanneyri, byggt árið 1896 að tilhlutan biskups, sem frekar vildi láta byggja slíka geymslu en láta nota gömlu kirkjuna til slíks, sem hafði þá verið gert um árabil. Eftir að Skólastjórahúsið brann 1903 var skemman lagfærð og bjó heimilisfólk á Hvanneyri (35-40 manns) í henni í rúmt ár, þar til nýtt íbúðar- og heimavistarhús var reist.
Árin 1907 – 1911 var kennd leikfimi uppi á lofti Skemmunnar. Haft er eftir einum nemanda að við leikfimiæfingar á skemmuloftinu hafi verið æði ”kalt og karlmannlegt” stundum.



9. Leikfimihúsið (Íþróttahöllin)
Leikfimihúsið var byggt 1911, að mestu leyti úr afgangstimbri frá byggingu Gamla skólans, 1910. Húsið var ekki eingöngu notað til leikfimikennslu; þar voru einnig haldnir fræðslufundir og samkomur enda var salurinn á þeim tíma stærsti samkomusalur í Borgarfirði. Leikfimihúsið er enn notað sem íþróttahús Hvanneyringa.



10. Skólagarður (Frúargarðurinn)
Ræktun garðsins hófst í byrjun 20. aldar en Lilja Sigurðardóttir frá Víðivöllum í Skagafirði sá um miklar lagfæringar á honum á árunum 1937-1939. Er garðurinn stundum nefndur eftir henni og kallaður Liljuspor. Hann hafði fyrst verið kallaður blómagarður og hugsaður sem skólagarður en gegnir nú hlutverki skrúðgarðs á staðnum. Í garðinum eru brjóstmyndir nokkurra fyrrum skólastjóra á Hvanneyri.



11. Gamli skólinn
Þar eru kennslustofur og einnig hafa kennarar skrifstofur á efri hæðunum. Húsið var reist árið 1910 eftir uppdrætti Rögnvaldar Ólafssonar. Fyrir framan kennslustofur á 1. hæð hússins er lítill salur sem að sögn Halldórs Vilhjálmssonar þáverandi skólastjóra var ætlaður til ”áfloga og skemmtana”.



12. Skólastjórahúsið
Fyrsta skólastjórahúsið á Hvanneyri var reist 1889, það brann 1903. Árið eftir var reist nýtt hús sem brann 1917. Húsið sem nú stendur er byggt árið 1920 á sama stað og þau fyrri. Það er teiknað af Guðjóni Samúelssyni, og var gert með tvöföldum steyptum veggjum með móeinangrun og kostaði í þá daga um 194 þúsund krónur. Í kjallara hússins þar sem áður var borðsalur skólans er bókasafn Landbúnaðarháskólans.


13. Kirkjan – Hvanneyrarfitjar og Fitin
Fram til ársins 1893 var torfkirkja inni í kirkjugarðinum á Hvanneyri en hún var heldur hrörleg. Suðuramtið lét svo reisa nýja kirkju 1893. Þegar hún kom var torfkirkjan notuð sem skemma en mislíkaði biskupi það og lét rífa hana. Nýja kirkjan stóð á hól sunnan við kirkjugarðinn. Hún þótti ekki sterklega byggð og fauk í ofviðri 1902. Kirkjan sem nú stendur var teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt og reist 1905. Þegar spænska veikin gekk á Hvanneyri árið 1918 lét Halldór Vilhjálmsson, þáverandi skólastjóri, alla starfsmenn skólans búa einangraða í kirkjunni og veiktist enginn þeirra.
Til vesturs frá kirkjunni eru Hvanneyrarengjarnar (nær) og Fitin (fjær, næst Hvítá). Vetur hvern flæðir Hvítá þarna yfir og nærir þau með framburði sínum. Engjarnar og Fitin eru því mjög grasgefnar og fyrr á tíð gerðu þessi greiðfæru slægjulönd Hvanneyri að einni bestu bújörð landsins. Árið 1943 var fimmta landsmót UMFÍ haldið á Hvanneyri og þá var keppt á Hvanneyrarfit.



14. Kirkjuhól og Mylluhóll
Kirkjuhóll er suðvestan við kirkjugarðinn sem stendur utan í hólnum. Þar stóð kirkjan sem fauk 1902. Suður af honum er annar hóll sem heitir Mylluhóll. Í ferðabók McKenzie frá byrjun 19. aldar er þess getið að vindmylla hafi verið á Hvanneyri, þá sú eina sinnar tegundar á Íslandi.



15. Kollubúð/Pöbbinn
Í gömlu hestaréttinni á Hvanneyri í svokallaðri Dyngju eru Kollubúð og Pöbbinn. Nyrðri hluti byggingarinnar er að stofni til elsta fjós skólans, byggt laust fyrir landamótin 1900.



16. Ullarselið og Búvélasafn
Ullarselið á Hvanneyri er verslun með vandað handverk, ullarvörur úr íslenskri ull og gæðahandverk úr íslensku hráefni. Í Búvélasafninu er að finna gamlar búvélar og verkfæri sem tilheyra tæknisögu íslensks landbúnaðar.



17. Fjósið (Halldórsfjós)
Fjósið á Hvanneyri er teiknað af Guðjóni Samúelssyni og var byggt á árunum 1928-1929. Það var byggt fyrir 80 gripi og þótti stórt og vandað á sínum tíma. Á fjósloftinu var íbúð og þar var einnig efnarannsóknastofa skólans um 40 ára skeið.



18. Fjósið (Nýja fjós)
Þann 6. ágúst árið 2004 var tekið í notkun nýtt og glæsilegt kennslu- og tilraunafjós á Hvanneyri með 58 legubása fyrir mjólkurkýr. Í fjósinu er aðstaða til kennslu og eru allir velkomnir í fjósið á mjaltatímum. Þar býr fjósakötturinn Rjómi sem tekur vel á móti gestum.



19. Grunnskóli Borgarfjarðar – Hvanneyri
Þar er 1.-5. bekkur frá Hvanneyri, Andakíl og Skorradal og er þar um 40 nemendur. Skólinn er Grænfánaskóli sem leggur áherslu á útikennslu. www.gbf.is



20. Andabær leikskóli
Í Andabæ eru börn á aldrinum 1-6 ára og er hann einnig Grænfánaskóli.



21. Bútæknihús
Í Bútæknihúsi fer m.a. fram kennsla í málmsuðu og þar er einnig kennslustofa. Þar er skrifstofa skólabúsins og verkstæði sem jöfnum höndum er notað til nýsmíði, viðgerða og ýmissa þróunar- og rannsóknaverkefna tengdum bútækni.



22. Ásvegur
Ásvegur leiðir okkur út að Nýja fjósi og Gömlu fjárhúsunum. Þar á vinstri hönd stóð m.a. gamla býlið Hamrakot og norðar er Staðarhóll, núverandi prestssetur, en þegar búnaðarskólinn var stofnaður á Hvanneyri voru alls sjö sjálfstæð býli í Hvanneyrarhverfinu.



23. Gömlu fjárhúsin
Fjárhús skólans var lengi á efri hæð hússins. Á neðri hæðinni hefur hesthús verið um árabil og þar hófst fyrst formleg kennsla í tamningum hérlendis. Í fjárhúsunum er hefð fyrir því að koma saman og grilla á vorin og haustin.



24. Skjólbeltin
Skemmtilegt útivistarsvæði með indijánatjaldi og fuglaskoðunarhúsi en þar má stundum sjá branduglur og fleiri áhugaverðar fuglategundir á ferð.