Logo
Málgagn nemendafélags nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands
7.9.2010 
7.9.2010 
Jæja elskurnar, nú er komið að klúbbakynningu þar sem formenn eða forsprakkar klúbbanna innan Nemendafélagsins kynna vetrardagskránna og hvernig starfsemi klúbbanna er háttað. Hún fer fram í matsal skólans í Ásgarði miðvikudaginn 8. september og hefst kl. 21.00. Allir velkomnir, það verður kaffi og með'í!
31.8.2010 
Þá er komið að því! Hið æsispennandi nýnemasprell verður haldið fimmtudaginn 2. september og hefst kl. 17.00. Nýnemar (bæði háskóladeild og bændadeild) mæta upp í Ásgarð þar sem skipt verður í lið og liðin verða svo send út til að gera ýmsar þrautir á staðnum. Léttar (fljótandi) veitingar verða í boði og liðið sem sigrar hefur með sér veglegan vinning heim eftir keppnina.

Um kvöldið eru svo deildapartý þar sem gleðin mun ríkja. Bændadeild, búvísindi og hestafræði halda partý sitt hjá Agli í risinu í Skólaflöt 12 (íbúð 301). Umhverfisskipulag mæta til Gunnars og Mumma í íbúð 107 í Skólaflöt 12. Loks mæta landgræðsla og skógfræði og náttúra og umhverfi (með undirheitum) til Hrafnkötlu í íbúð 208 í Skólaflöt 8. Í þessi partý eru allir velkomnir; ekki bara nýnemar heldur er mælt með að eldri nemendur mæti einnig til að bjóða nýnema velkomna og kynnast þeim. Let the party begin!
26.8.2010 
Í dag, fimmtudaginn 26. ágúst, verður Nemendafélagið með fjárhúsgrill í gömlu fjárhúsunum í Þórulág. Kveikt verður upp í grillinu fyrir klukkan 20.00 og verður það orðið heitt um áttaleytið svo fólk geti farið að grilla. Nemendafélagið skaffar borð og stóla en nemendur mæta með grillmat, meðlæti, borðbúnað, drykki og góða skapið. Ef kalt verður í veðri lokum við út og kveikjum upp í gashitaranum. Hlökkum til að sjá alla, sérstaklega eru nýnemar hvattir til að mæta!

Fjárhúsin eru í norðaustur-hluta Hvanneyrar, beint á móti Hvanneyrarfjósi (við enda Ásvegs).
17.8.2010 
Nú líður senn að því að skólaárið 2010-2011 hefjist og skólastarf fari á fullt. Nýnemar í háskóladeild eiga að mæta í Ásgarð á Hvanneyri mánudaginn 23. ágúst kl. 9.00. Nýnemar í búfræði mæta í Ásgarð mánudaginn 30. ágúst kl. 9.00 en garðyrkjunemar að Reykjum í Ölfusi. Fyrstu dagarnir fara svo í að nýnemar kynnist sín og milli og einnig skólanum. Þá stendur Nemendafélagið fyrir uppákomum fljótlega eftir skólasetningu; s.s. fjárhúsgrilli og nýnemasprelli.
10.5.2010 
Friðrik Skúlason ehf veitir nemendum LbhÍ 40% afslátt af Lykla-Pétri vírusvörn (þegar hann er keyptur í fyrsta sinn) og 20% afslátt af ritvilluvörninni Púka (leiðréttir stafsetningarvillur í öllum Office-forritum).

Hægt er að kaupa símleiðis og til að fá afslátt þarf að segjast vera í skólanum og segja til nafns því þau eru með nemendalista.
24.4.2010 
Skeifudagur Grana og LbhÍ var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 22. apríl síðastliðinn að Mið-Fossum. Sumardagurinn fyrsti rann upp sólríkur og fagur og gaf loforð um góðan dag. Boðið var upp á skemmtilega dagskrá þar sem nemendur í hrossarækt sýndu afrakstur vetursins og kepptu sín á milli um Morgunblaðsskeifuna og Gunnarsbikarinn. Einnig voru riðin úrstlit í tölti og fjór-/fimmgangi hjá Reiðmanninum, sem er námskeiðsröð sem endurmenntunardeild býður upp á. Þess á milli var bryddað upp á skemmtiatriðum, m.a. voru Skessurnar með flott reiðatriði og Leikssynirnir Biskup og Sikill sýndu hæfileika sína.
20.4.2010 
Jæja nemendur góðir; nú er kominn tími á vorbaðið. Lista- og menningarklúbburinn og Nemendafélagið standa fyrir sundlaugarpartýi í sundlaug skólans miðvikudaginn 21. apríl. Herlegheitin hefjast upp úr 15.30 eða svona sirka um kaffileytið. Þar verður boðið upp á léttar veitingar. Bent er á búningsklefana sem eru í kjallara Ásgarðs og er um að gera að nýta sér þá aðstöðu bæði fyrir og eftir sundsprett.

Um kvöldið er svo komið að árlegri grillveislu Hrútavinafélagsins Hreðjars. Hún fer fram í skjólbeltunum sunnan við Hvanneyri. Hlutafjáreigendum er boðið upp á heilgrillaðan hrút á teini og sósur og ýmist meðlæti verður einnig í boði. Þar verða einnig borð og stólar sem og borðföng. Veislugestir koma sjálfir með drykkjarföng að eigin vali. Grillið hefst um 19.00 eða á kvöldmatartíma.
20.4.2010 
16.4.2010 
Nemendaskírteinin eru tilbúin og hægt að nálgast þau í hádeginu á mánudaginn í Ásgarði!
Fyrir fjarnemendur og þá sem komast ekki upp í skóla á mánudaginn er alltaf hægt að hafa samband við formanninn í síma 848-8145 og nálgast skírteinin.

Upplýsingar um þau tilboð sem fást með framvísun skírteinisins eru birtar hér (eða undir Félagið > Nemendaskírteini í vinstri stikunni). Einnig eru margar búðir víðsvegar með nemendaafslátt - það þarf bara að muna að spyrja!
16.4.2010 
Rappsveitin Benni Valdez & Brisk hafa gefið út plötuna Svona Rúllum Við sem er mainstream rapp-plata med r'n'b-áhrifum. Plötunni er dreift ókeypis á vefsíðunni bennivbrisk.com


9.4.2010 
Þá er síðasta vetrarmóti hestamannafélagsins Grana lokið, en opna smalamótið var haldið með látum fimmtudagskvöldið 8.apríl síðastliðið.

Keppt var í 2. og 1. flokki og voru skráningar með ágætum. Mótið fór hratt af stað þar sem hver keppandinn á fætur öðrum þeyttist í gegnum stórskemmtilega smalabraut á mettíma :)

Flestir komust í gegnum brautina og allir gerðu það slysalaust, þrátt fyrir ýmis konar hundakúnstir eins og berbaktreið, smávegis hrekki, stuttar rokur, knapahlaup og knapastökk (en sá knapi endaði hangandi á áhorfendapöllunum). 

Þetta var semsagt allt í allt glæsilegt mót og prýðisgóð skemmtun og vill Grani þakka kærlega öllum þeim sem komu að því á einhvern hátt!

Um leið viljum við þakka góða þátttöku, aðstoð og samveru á öllum þremur vetrarmótunum í vetur!! :)

Meðfylgjandi eru úrslit úr smala.
6.4.2010 
22.3.2010 
Opið töltmót Grana var haldið fimmtudagskvöldið 18. mars síðastliðið á Mið-fossum. Mótið heppnaðist með eindæmum vel og komu þar saman glæsilegir hestar og stórskemmtilegt fólk!

Meðfylgjandi eru úrslit kvöldsins (smellið á fyrirsögnina).
19.3.2010 
Mánudaginn 22. mars frá klukkan 12:00 - 13:00 verður myndataka á nemendum vegna fyrirhugaðra nemendaskírteina. Takan mun fara fram í fundarherberginu á skrifstofugangi á jarðhæð í Ásgarði. Við hvetjum alla sem ekki mættu síðasta mánudag til að mæta og láta taka mynd af sér því engin mynd jafngildir engu nemendaskírteini. Við erum nú þegar búin að smala saman afslætti hjá mörgum fyrirtækjum bæði í heimabyggð og í Reykjavík sem nemendur ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.
17.3.2010 
9.3.2010 

Mánudaginn 15. mars frá klukkan 12:00 - 14:00 verður myndataka á nemendum vegna fyrirhugaðra nemendaskírteina. Takan mun fara fram í fundarherberginu á skrifstofugangi á jarðhæð í Ásgarði. Við erum nú þegar komin með afslætti í nokkrum fyrirtækjum á svæðinu og til þess að fá þá þarf að framvísa skírteininu. Við hvetjum ykkur til að mæta því engin myndataka - ekkert skírteini!

Þeir sem útskrifast í vor vita af myndatökum 22. og 23. mars fyrir útskriftarspjald en mega einnig koma á mánudaginn til að láta taka af sér mynd fyrir spjaldið.

22.2.2010 
Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands fá 10% afslátt af vörum í hestavöruversluninni Knapanum í Borgarnesi. Nemendur þurfa einungis að segjast vera nemendur til að fá 10% afslátt af þeim vörum sem þeir eru að versla. Nemendafélagið hvetur alla til að nýta sér þetta þegar þeir versla vörur fyrir gæðinginn.
19.2.2010 
Í gær fór spurningakeppni Landbúnaðarháskólans, Viskukýrin, fram í sjötta sinn. Troðfullur matsalur skólans sat spenntur yfir viðureignunum en liðin voru frá heimamönnum, starfsmönnum, bændadeild, búvísindum og hestafræði, umhverfisskipulagi og loks landgræðslu, skógfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Logi Bergmann Eiðsson var spyrill líkt og fyrr. Að lokum fór það svo að lið búvísinda og hestafræði mætti liði landgræðslu, skógfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Búvísindi og hestafræði báru sigur úr býtum en þetta er í fyrsta sinn sem það lið hefur hlotið þennan titil. Liðið skipuðu Egill Gunnarsson, Helgi Eyleifur Þorvaldsson og Halldór Arnar Árnason.
16.2.2010 
Á dögunum kusu nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands starfsmann ársins 2009.  Í þetta sinn var það Þorkell Þórðarson, starfsmaður búrekstrarsviðs, sem hlaut nafnbótina.  Í tilefni þess færði fyrrverandi stjórn NLbhÍ Kela blómvönd og gjafabréf frá Hótel Hamri og Landnámssetrinu.  Vill Nemendafélagið óska Kela kærlega til hamingju með kjörið, er hann vel að því kominn.
 
Nemendafélagið vill þakka Hótel Hamri og Landnámssetrinu sýndan stuðning.

Starfsmaður ársins síðustu ára:
2008: Þórunn Edda Bjarnadóttir
2007: Sverrir Heiðar Júlíusson
2006: Álfheiður Marinósdóttir

15.2.2010 
1.2.2010 
27.1.2010 
20.1.2010 
Karlakvöld
Fimmtudaginn í Tungutúninu

Húsið opnar kl.19:00,         Allir kk velkomnir.
Verum stundvísir(eins og alltaf.
Borgað fyrir 3 sæti (1.sæti 50%, 2.sæti 30% og 3.sæti 20%)

Tungutúnið er gula höllin hjá Rannsóknarhúsinu.



_____________________________________________________________________
18.1.2010 
13.1.2010 

Hæ allir
 
Vorum að spá í að nýta góða veðrið og allir myndu hittast út á sparkvelli og spila saman BjórKUBB kl 17 á morgun :)

Með ástraltertuKUBBkveðju
 
Stjórnin




____________________________________________________________________________
11.1.2010 


Hvað merkir orðið hosiló?
Hver á fiskinn í gátu Einsteins?
Hversu marga vængi hefur fiðrildi?

Þú færð hugsanlega svar við þessum spurningum og mörgum fleirum
ef þú mætir í Ársal kl.19:45 þriðjudagskvöldið 12.janúar og hlýðir
á búfræðinemana okkar rústa menntskælingum úr Kópavogi í Gettu betur.

Allra hörðustu stuðningsmennirnir eru þó eindregið hvattir til
að mæta í útvarpssal og hvetja liðið áfram í beinni útsendingu.

Vertu þar, eða vertu ferningur!
________________________________________________________
17.12.2009 

25.11.2009 

23.11.2009 
Kæru nemendur LbhÍ

Takk fyrir frábæra Árshátíð!

Gangi ykkur sem allra best á lokaspretti annarinnar.

Stjórn NLBHÍ og Árshátíðarnefndin.

11.11.2009 
.

3.11.2009 
HITUM UPP FYRIR ÁRSHÁTÍÐ!!

Nú fer að líða að Árshátíðinni :)
Er þá ekki upplagt að rifja upp gömul, góð Árshátíðar myndbönd....... svona til að koma okkur í gírinn! :)
Fimmtudaginn 5. nóv kl 20 upp í Ársal :)

Allir að mæta!!!

Skemmtinefndin
_______________________________________________________________________________________

28.10.2009 

Jæja þá er miðasalan byrjuð fyrir Skímó ballið!

Miðasala á ballið var í hádeginu í dag og verður aftur á morgun (fimmtudag) út í Nýja Skóla (Ásgarði).
 
Það kostar litlar 1500 kr á ballið og 500 kall í rútuna - erum með posa á staðnum :)
 
Rútan fer héðan kl 21:20 á föstudaginn og heim til baka að loknu balli um 03.


____________________________________________________________________________________
27.10.2009 
    Nemendafélagið hefur fengið kvartanir vegna partýstands í heimahúsum eftir barinn á fimmtudögum. Því finnst okkur réttast að hvetja nemendur til að sýna samnemendum og nágrönnum tillitssemi.
    Það eru í gildi húsareglur varðandi hávaða.  Eftir kl 24:00 skal ríkja kyrrð í húsnæðum og leita skuli samþykki næstu nágranna ef um sérstakar uppákomur er að ræða s.s. partý og veislur sem raskað geta ró þeirra eftir kl 24:00.

Stjórn Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands.
____________________________________________________________________________________
25.10.2009 
23.10.2009 
 
Eins og fram hefur komið í pósti frá nemendarfélaginu þá hefur verið skorað á okkur Hvanneyringa í karókí keppni föstudaginn 30 október í Borgarnesi á B57 og munum við heldur betur ekki skorast undan þeirri áskorun!
Mun gamanið svo halda áfram eftir keppnina og verður trallað með Skítamórall langt frema eftir nóttu! ! :D
 
3 einstaklingar munu keppa fyrir hönd okkar og 3 keppendur frá Bifröst
 
Og hvernig munum við ákveða hvaða 3 einstaklingar keppa fyrir hönd okkar og syngja Bifröst í kaf??!?!
 
Nú með því að halda forkeppni á Kollubar - Þriðjudagskvöldið 27 október - kl 20:30 . .
 
Heyrst hefur nefnilega að þriðjudagskvöldin séu hin nýju fimmtudagskvöld  . .  og ekki mæta alltof seint  af því að ..
 
Snorri og Kolla verða svo rausnalega að vera með mega-karókí tilboð á barnum .
 
! ! Stórbjór á krana á 500 krónur fram til klukkan 22:00 ! !
 
Verða 3 vel valdir dómara á svæðinu sem munu velja sigurvegara og dæma þau eftir sönghæfileikum, framkomu, sjarma og svo framvegis.
 
Lögin sem í boði verður að syngja eru hérna fyrir neðan og væri ágætt ef að fólk myndi renna yfir þau svona til þess að hlutirnir gangi smurt fyrir sig!
 
Í verðlaun fyrir 3 efstu sætin verða miðar inn á ballið ! ! !
 
Frítt inn - Ódýr bjór - Kollubar - karókí- skemmtilegt fólk ... gerist ekki betra!

Lagalisti
_________________________________________________________________________________________
16.10.2009 
14.10.2009 

Ungt fólk og Landbúnaður

Þann 23. október næstkomandi er stefnt að því að halda málþing í Dalabúð í Búðardal með yfirskriftinni Ungt fólk og landbúnaður og í framhaldi verður stofnfundur samtaka ungra bænda. Viljum við hvetja sem flesta til að mæta, bændur sem og annað fólk sem hefur áhuga á málefnum landbúnaðar og hinna dreifðu byggða landsins. Enn fremur viljum við vekja athygli á því að allt ungt fólk á aldrinum 18 til 35 ára getur orðið aðilar að samtökunum, ekki er skilyrði að vera starfandi bóndi, einungis að hafa áhuga á málefnum landbúnaðar og landsbyggðarinnar.

 Dagskráin á föstudeginum hefst kl. 13:00 og er svo hljóðandi:

Forseti Íslands Herra Ólafur Ragnar Grímsson setur málþingið Ungt fólk og Landbúnaður

Tækifæri í sjálfbærri matvælaframleiðslu á Íslandi – Kristín Vala Ragnarsdóttir forstöðumaður Umhverfis- og verkfræðideildar Háskóla Íslands

Ungir bændur á Íslandi – Þeirra eru tækifærin – Ingibjörg Sigurðardóttir Háskólinn á Hólum

Frá átaki til árangurs – Baldvin Jónsson verkefnisstjóri hjá Áform

Hvers vegna er spennandi að vera ungur bóndi – Haraldur Bendiktsson

Klukkan 16:30 hefst stofnfundur Samtaka ungra bænda.

Fundarstjóri verður Ásmundur Einar Daðason alþingismaður

Samfara málþinginu og stofnfundinum mun Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) halda hinn árlega haustfagnað sauðfjárbænda í Dalasýslu með tilheyrandi gleði og glensi þar sem má ganga að því vísu að Dalamenn fari á kostum líkt og vant er (sjá glæsilega dagskrá nánar á dalir.is).

Á laugardeginum verður staðið í fyrsta sinn fyrir keppninni Ungi bóndi ársins, fer hún fram í reiðhöllinni í Búðardal ásamt fjölmörgum öðrum viðburðum helgarinnar. Sérlegir ráðgjafar og hönnuðir keppninnar eru ekki af verri endanum, þann hóp skipa þeir Unnsteinn Snorri Snorrason landsráðunautur í bútækni, Óðinn Gíslason athafnamaður að Syðstu-Fossum og síðast en ekki síst Guðmundur Hallgrímsson sveitafittness sérfræðingur. Skorum við á sem flesta að skrá sig til keppni á netfangið margret@bssl.is

Viljum við benda þeim sem að hyggjast mæta að hægt er að panta gistingu á góðu verði á hótelinu að Laugum í Sælinsdal í S:434-1600/8612660.
_________________________________________________________

30.9.2009 
Lista- og menningarklúbburinn hefur nú hafið störf
á ný eftir langt og gott sumarfrí.

Fyrsti viðburður klúbbsins er leikhúsferð á sýninguna 21 manns saknað, þann 10 október n.k. Sýningin er sýnd í Landnámssetri Íslands, Borgarnesi. Við fáum miðann á sérstökum kjörum eða á 1300 krónur.


Sýningin var tilnefnd til Grímuverðlaunanna árið 2009 sem besta leiksýningin.

Leikarinn Víðir Guðmundsson fer á kostum í sýningunni og bregður sér þar í allra kvikinda líki. Í sögunni segir ævintýralegri ævi Odds V. Gíslasonar sem kallaður hefur verið mesta “braskmenni” Íslands.


Nú er um að gera að skella sér í leikhús og hvíla sig í rúma tvo tíma á bókunum.
_________________________________________________________________________________________ 
22.9.2009 
Kæra skemmtanaglaða skólafólk!


Miðar á ballið OG í rútuna verða seldir í hádeginu á morgun miðvikudag og fimmtudag í andyrinu á Ásgarði (stóra húsið með sundlauginni í garðinum).
Ball + rúta = 1800 kr.
Ball = 1110 japönsk jen, 216.450 víetnömsk dong, 12 bahama dollarar. Já eða bara 1500 íslenskar krónur.
Ekki verður hægt að borga í rútuna á föstudagskvöldið, svo tryggið ykkur miða í hádeginu☺

Rútuballmiðasölunefndin


Skorum á formann vor að taka lagið
með hljómsveitinni líkt og í fyrra.

_________________________________________________________________________________________ 
21.9.2009 

16.9.2009 

_____________________________________________________________________________________
4.9.2009 
Í hádeginu á morgun, 16.09.2009, verða klúbbarnir með kynningu á starfsemi sinni!
 
Nemendafélagið ætlar að fæða ykkur með því sem Guðni Ágústsson vill meina að sé meinholl fæða - pylsur og kók.
 
Hvetjum alla til að til að kíkja og kynna sér þá starfsemi sem fram fer á vegum klúbbana. 
 
Ef þið sjálf hafið hugmyndir um klúbba þá erum við opin fyrir slíku.
 
Kynningin verður haldin í Ásgarði - Nýja skóla.
 
Ykkar einlæg
 
Stjórn Nemendafélags LbhÍ og klúbbarnir

_____________________________________________
1.9.2009 


_____________________________________________________________________________________
31.8.2009 
Í dag kom Bændadeild 1 í skólann og bjóðum við þau velkomin.
Hér eru nokkrir punktar til nýnemana okkar og einnig gott að minna eldri nemendur á:
    -Þegar við sendum út einhverjar tilkynningar þá gerum við það í gegn um nemendapóstinn,svo verið     dugleg að kíkja alltaf á hann.
    -Heimasíða nemendafélagsins er www.nlbh.is og þar er allt um starfsemina á vegum     nemendafélagsins.
    -Við erum með litla líkamsrækt hér í skólanum hún er staðsett í kjallara Ásgarðs.
    -Næsta djamm er Nýnemasprell, fimmtudaginn 3. Sept. kl 17:00 og svo verður kynning á     klúbbastarfsemi skólans þriðjudaginn 8. Sept. Þetta er allt auglýst nánar inná síðu skólans.


Kveðja Stjórn nemendafélags LBHÍ
_____________________________________________________________________________________
25.8.2009 

_____________________________________________________________________________________
7.8.2009 

Sumarið er senn á enda og nemendur fara að storma að Hvanneyri!


Nú eru aðeins 16 dagar í að skólinn hefjist á ný.

Við í nemendafélaginu vonum að allir hafi haft það gott í sumar og við erum farin að hlakka til að hitta skólafélaga okkar aftur.
Við viljum líka bjóða alla nýnema velkomna í skólann.
Sjáumst svo hress 24. ágúst n.k. og þið skulið strax taka fimmtudaginn 27. ágúst frá :)


_____________________________________________________________________________________

29.4.2009 
Hreinsunardagur og Vorfagnaður

Stjórnin vill minna á Hreinsunardaginn í dag, allir að mæta í anddyri Ásgarðs kl 16:00 og eftir alla hreinsunina förum við í Skjólbeltið og þar sem við höldum Vorfagnað :)

Það sem boðið verður upp á eru grillaðar PYLSUR, GÍTARSPIL, LEIKIR og Rúsínan Í Pylsuendanum er að FJÖLLISTA TRÚÐAR munu koma og skemmta fólki.
Hittumst og eigum góðar stundir saman ☺
Stjórn Nemendafélags LBHÍ
P.S. pöbbinn verður opinn í kvöld!

_____________________________________________________________________________________

21.4.2009 

Hvernig væri að skella sér á Kollubar í kvöld og kíkja á boltann í beinni?

Nú ef boltinn er ekki að heilla þá verður þar hópur náttúruvísindanema frá Noregi. Þetta er FRÍÐUR hópur sem er hér að sækja skólann okkar heim og því væri ekki úr vegi að skreppa á Kollubar
og ræða við þá um blómin og býflugurnar. Eða bara e-ð annað :)

Leynist ástin í lífi hinna einhleypu eða kærkominn vinur þeirra vinafáu? Sýnum nú af okkur hversu gestrisið fólk við erum og hver veit nema þarna  nú eða bara sætur strákur eða stelpa sem gaman væri að ræða við um lífsins lystisemdir.

Staður: Kollubar
Stund: 18:50 - þann 21. apríl 2009
_____________________________________________________________________________________
21.4.2009 
Þá er komið að grillveislu Hrútavinafélagsins....
 
Hrútavinafélagið Hreðjar heldur sína árlegu grillveislu miðvikudaginn 22. apríl 2009.
 
Hún verður haldin úti í Skjólbeltum kl 19:00.
 
Allir þeir sem eiga hlut í Hreðjari VI er boðið, (sem sagt þeir sem keyptu hlut á uppboðinu í haust).
 
Á boðstólnum verða heilgrillaðar lambskrokkar á teini í boði Sláturfélags Suðurlands. Sósa og salat í boði Hreðjars. Auk þess verður borðbúnaður á staðnum.
 
Fólk þarf að hafa með sér eitthvað til að væta kverkarnar og drykkjarílát.
 
Hlökkum til að sjá sem flesta.
 
Hrútavinafélagið Hreðjar
16.4.2009 


MINNI Á BJÓRBOLTANN Í DAG
KL 16:00 Á GERVIGRASVELLINUM!
ALLIR AÐ MÆTA :)
VEGLEGIR VINNINGAR

_____________________________________________________________________________________

15.4.2009 
7.4.2009 
Söngkeppni Framhaldsskólanna verður haldin á Akureyri laugadaginn 18. apríl 2009. Henni verður sjónvarpað og það í beinni útsendingu af stöð 2, þar sem herlegheitin verða í opinni dagskrá.


Fyrir okkar hönd fara þær Auðna, Helga og Lauga.


Enn er verið að kanna hvort einhver áhugi sé
að fara  HÓPFERÐ til Akureyrar og  berja þær og aðra keppendur augum. Ef áhugi er fyrir ferð væri eflaust hægt að flétta saman einhverri góðri dagskrá!!

Endinlega látið í ykkur heyra með því að senda póst á
studentarad
_____________________________________________________________________________________
6.4.2009 

Úrslit Smalamótsins hjá Grana á Hvanneyri.


Mótið var haldið þann 31.mars s.l. á Mið-Fossum og var það þriðja og um leið síðasta í röðinni á vetrarmótadagskrá Grana.
Vel hefur tekist til á mótunum þremur og þátttaka hefur verið góð.




_____________________________________________________________________________________
4.4.2009 
Opinn dagur á Hesti

Landbúnaðarháskóli Íslands verður með opið hús í kennslu- og rannsóknarfjárhúsunum að Hesti í dag laugardaginn 4. apríl.
Vélar, tæki, frábært fé, skemmtilegt fólk, happadrætti, margvíslegar keppnir o.fl. sem er á dagskrá dagsins.
Þá verður einnig opið hús í Nautastöð BÍ á Hesti samhliða.

Dagskráin hefst kl 12 og líkur kl 17.

_____________________________________________________________________________________
30.3.2009 
Gott fólk, gott fólk.
Gleðin er að skella á...
 
Í dag, mánudaginn 30. mars verður farið í Flókadalinn að Hrísum (um 20 mín frá Hvanneyri) í heimsókn til Dísu og Dagbjarts sem eru með ný fjárhús til skoðunar.
 
Lagt verður af stað um 19.30 frá Hvanneyri og farið verður á einkabílum. Þeir sem hafa áhuga á því að njóta félagsskapar Hreðjarsnefndarinnar og skoða ný fjárhús svari þessum pósti eða hafi samband við nefnarmeðlimi
(Birtu 847-8877 eða Einar Kára 867-5005)
 
kveðja Hreðjar
24.3.2009 
KAFFIFUNDUR númer 2
 verður haldinn
á morgun,
miðvikudag, kl.17:00 í matsal Ásgarðs.


Öllum er velkomið að mæta, bæði nemendum og starfsfólki, taka þátt í umræðunni og koma með spurningar.

-Kaffi (og mjólk!) og kökur verða í boði-


Góðir gestir munu láta sjá sig, m.a. ætla þau Áslaug (formaður
Auðlindadeildar) og Óli Arnalds (formaður Umhverfisdeildar) að koma
og ræða sameiningarmálin. Ágúst rektor mun einnig láta sjá sig, sem
og forsvarsmenn Grana sem ætla að kynna þau mót sem framunan eru.
Lilja formaður ætlar að fara aðeins yfir húsnæðismál nemendagarðanna,
og boðið verður upp á verklega kennslu í útreikningum húsaleigunnar
miðað við vísitölu.

Vonumst til að sjá ykkur öll!
18.3.2009 




L
íkt og á síðasta ári ætlum við að taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna.  Í fyrra fór Magnús Ásgeir fyrir fríðum flokki drengjasveina og stóðu þeir sig allir með prýði!

Í ár ætlar hún Auðna okkar að keppa fyrir okkar hönd ásamt þeim stöllum sínum, Laugu og Helgu. Þær munu flytja lagið Þar eru rósir en það er íslenskuð útgáfa af snilldarlaginu Holding out for a hero sem Bonnie Tyler gerði ódauðlegt fyrir nokkrum áratugum síðan.

Keppnin verður haldin á Akureyri og var upphaflega dagsett 4.apríl en vegna breyttra aðstæðna verður hún líklega haldin 18.apríl.  Endanleg dagssetning verður auglýst síðar.
18.3.2009 
Ég vil bara benda á dagskránna hjá okkur næstu daga.
Enginn ætti að láta sér leiðast um helgina!!

11.3.2009 
10.3.2009 
3.3.2009 
Töltmót Grana var haldið fimmtudaginn 26. febrúar s.l.
Hér eru úrslit mótsins.



18.2.2009 
Margt um að vera á fimmtudagskvöldið!!!

Fræðsluerindi hjá Skógræktarfélaginu Dafnari.

Opið fræðsluerindi hjá Skógræktarfélaginu Dafnari á Hvanneyri er haldið fimmtudagskvöldið 19. febrúar kl 20:00 í Vesturstofu.
Titill: Skógar Króatíu
Flytjandi: Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor í skógfræði við Landbúnaðarháskólann.
Allir eru velkomnir á erindið – bæði innan skóla og heimamenn úr héraði.

 
Drekktu betur spurningakeppnin sívinsæla.
UMSK 2 ætlar að halda Drekktu betur aftur. Keppnin verður haldin í matsal skólans kl 20:30 og kostar litlar 500 kr inn.  Verðlaun fyrir stigahæsta liðið.
Eftir reynslu síðustu keppni hefur hinu og þessu verið breytt, svo nú verður þetta ENN skemmtilegra :0)


Stjórnmálafundur Samfylkingafélagsins og ball með Pókerbandinu All-In á Bifröst.
Fundurinn byrjar kl 20:00 og stendur til 21:30



16.2.2009 
Kæru samnemendur!!
 
Okkur hefur borist rausnarlegt boð frá vinum okkar í Samfylkingafélaginu á Bifröst um að koma á fund næstkomandi fimmtudagskvöld á kaffihúsi staðarbúa!!
 
Kvöldið hefst á stjórnmálafundi þar sem boðað hafa komu sína Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, Karl V. Matthíasson þingmaður Norðvesturkjördæmis, Guðbjartur Hannesson forseti Alþingis, Anna Pála Sverrisdóttir formaður ungra jafnaðarmanna og kannski mun Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðarráðherra mæta.
 
Á fundinum munu verða fljótandi veigar í boði Samfylkingarfélagssins!!
 
Að fundinum loknum mun Pókerbandið All-In halda uppi fjörinu á Kaffi Bifröst - ekki mun vera neinn aðgangseyrir að þeirri skemmtun.
 
 
Nú er lag að grípa gæsina og fara og kíkja á kollega okkar á Bifröst yfir kollu - við í stjórninni höfum grun um að þetta verði stórskemmtun og gaman að styrkja tengsl okkar við grannskólann!
 
Ágætt væri að fá að vita um áhuga ykkar á þessu svo endilega látið okkur vita með því að senda á netfangið studentarad@lbhi.is fyrir miðvikudag svo við vitum sirka fjölda!!
 
Fyrirhugað var hjá UMSK II að halda aftur hina stórskemmtilegu keppni "Drekktu betur" þennan sama dag en þau voru það elskuleg að vera tilbúin að fresta því til betri tíma vegna þessa boðs sem við höfum fengið.
 
Fyrir hönd Nemendafélagssins
Lilja J.
12.2.2009 
Viskukýrin 2009

 

Verður haldin í matsal LBHÍ á Hvanneyri í kvöld kl 20:00.
Aðgangseyrir er 500 kr, frítt fyrir 14 ára og yngri.
Stjórnandi keppninnar er Logi Bergmann Eiðsson.

5.2.2009 


MINNI Á EIGHTIES BALLIÐ
Í KVÖLD  KL 21:00
Á KOLLUBAR



2.2.2009 
Starfsmaður ársins 2008 var kosin um leið og kosningar til nýrra stjórnar nemendafélagsins. Og var Þórunn Edda Bjarnardóttir kosin starfsmaður ársins og er hún vel að titlinum komin. Nemendafélagið verðlaunaði hana með blómvendi og gjafabréfi fyrir tvo í mat og á leiksýningu á Landnámssetrinu í Borgarnesi.

Starfmaður ársins síðustu ára
2008: Þórunn Edda Bjarnardóttir
2007: Sverrir Heiðar Júlíusson
2006: Álfheiður Marinósdóttir









29.1.2009 
Aðalfundur Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands var haldinn miðvikudagskvöldið 28. janúar sl., fundarstjóri var Vignir Þór Siggeirsson og fundarritari Hildur Dagbjört Arnardóttir.
29.1.2009 

Skýrsla stjórnar til aðalfundar 2009

Gott fundarfólk, að venju mun ég gera grein fyrir helstu störfum stjórnar

nemendafélagsins frá síðasta aðalfundi. Á þ essum tíma höfum við haldið 17 bókaða

stjórnarfundi auk nokkurra minni funda. Þ eir viðburðir sem stjórnin hefur staðið að

síðastliðið ár eru:

27.1.2009 
Kosningamyndband

Stuðningsmenn Lilju Jóhannesdóttur frambjóðanda hafa sent frá sér kosningamyndband sem má nálgast hér:   Myndband
26.1.2009 

HALLÓ HALLÓ

Minnum kynningarfund á frambjóðendum í kvöld kl. 20:00 í matsal skólans (í Ásgarði)

 

Kosningar verða haldnar í hádeginu dagana 27. og 28. janúar, að auki verður kosið um starfsmann ársins.

 

Aðalfundur og úrslit kosninga verður miðvikudaginn 28. Janúar kl. 20:00 í matsal skólans (í Ásgarði),veitingar verða í boði.

 

 

F.h Kjörnefndar

Anna Katrín

Hjördís og

Þorbjörg

26.1.2009 


Formaður og fulltrúi í stjórn nemendagarða

Jón Árni Bjarnason UMSK 2

Lilja Jóhannesdóttir NU 2

   
12.2.2009  Ívar Sæland Sveinsson
Viskukýrin
Viskukýrin 2009

 

Verður haldin í matsal LBHÍ á Hvanneyri í kvöld kl 20:00.
Aðgangseyrir er 500 kr, frítt fyrir 14 ára og yngri.
Stjórnandi keppninnar er Logi Bergmann Eiðsson.